Vi bøger
Levering: 1 - 2 hverdage

Gamansögur - Benedikt Gröndal - E-bog

Bag om Gamansögur

Bókin inniheldur tvær sögur. Sagan af heljarslóðarorrustu fjallar um erlenda leiðtoga síns tíma, m.a. Napóleon Bónaparte, Viktoríu Englandsdrottningu og Austurríkiskeisara og segir frá skoplegum hrakförum þeirra. Þórðar Saga Geirmundarsonar gerir sig út fyrir að vera skrifuð upp eftir gömlum handritum, en er í raun skoplegur spegill á samtímann í líki fornsagna. Báðar eiga þær það sameiginlegt að vera ádeila á samtímamenn höfundar, með góðum skammti af húmor og skrifaðar í stíl fornsagna, eins og höfundi var einum lagið. Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal (1826-1907) fæddist að Bessastöðum á Álftanesi. Þó hann hafi verið einn tíu systkina fékk hann góða menntun og fór til Kaupmannahafnar í nám þegar hann hafði aldur til. Hann lauk ekki námi og sneri aftur til Reykjavíkur, en endaði með að fara aftur í nám til Kaupmannahafnar sjö árum síðar. Þar kynntist hann skrautlegu fólki og endaði með að ferðast til Belgíu og taka kaþólska trú. Eftir það lauk hann loks prófi í norrænum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla, en hann var fyrstur Íslendinga til þess. Benedikt hneigðist mjög að list og náttúrufræðum og var meðal annars einn af stofnendum Hins íslenska náttúrufræðifélags. Eftir hann liggja ómetanlegar teikningar af lífríki Íslands. Hann var einnig afbragðsgott skáld og orti bæði ljóð, skrifaði leikrit og sögur. Verk hans bera sterkan brag af samtímanum en eru undir miklum áhrifum af íslenskum fornbókmenntum, oft á býsna kómískan hátt.

Vis mere
  • Sprog:
  • Ukendt
  • ISBN:
  • 9788728247464
  • Udgivet:
  • 4. Oktober 2022
Leveringstid: Straks på e-mail

Beskrivelse af Gamansögur

Bókin inniheldur tvær sögur. Sagan af heljarslóðarorrustu fjallar um erlenda leiðtoga síns tíma, m.a. Napóleon Bónaparte, Viktoríu Englandsdrottningu og Austurríkiskeisara og segir frá skoplegum hrakförum þeirra. Þórðar Saga Geirmundarsonar gerir sig út fyrir að vera skrifuð upp eftir gömlum handritum, en er í raun skoplegur spegill á samtímann í líki fornsagna. Báðar eiga þær það sameiginlegt að vera ádeila á samtímamenn höfundar, með góðum skammti af húmor og skrifaðar í stíl fornsagna, eins og höfundi var einum lagið.

Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal (1826-1907) fæddist að Bessastöðum á Álftanesi. Þó hann hafi verið einn tíu systkina fékk hann góða menntun og fór til Kaupmannahafnar í nám þegar hann hafði aldur til. Hann lauk ekki námi og sneri aftur til Reykjavíkur, en endaði með að fara aftur í nám til Kaupmannahafnar sjö árum síðar. Þar kynntist hann skrautlegu fólki og endaði með að ferðast til Belgíu og taka kaþólska trú. Eftir það lauk hann loks prófi í norrænum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla, en hann var fyrstur Íslendinga til þess. Benedikt hneigðist mjög að list og náttúrufræðum og var meðal annars einn af stofnendum Hins íslenska náttúrufræðifélags. Eftir hann liggja ómetanlegar teikningar af lífríki Íslands. Hann var einnig afbragðsgott skáld og orti bæði ljóð, skrifaði leikrit og sögur. Verk hans bera sterkan brag af samtímanum en eru undir miklum áhrifum af íslenskum fornbókmenntum, oft á býsna kómískan hátt.

Brugerbedømmelser af Gamansögur



Find lignende bøger
Bogen Gamansögur findes i følgende kategorier:

Gør som tusindvis af andre bogelskere

Tilmeld dig nyhedsbrevet og få gode tilbud og inspiration til din næste læsning.